Herjólfur er fjórða farþegaferjan með þessu nafni sem gengur til Heimaeyjar í Vestmannaeyjum. Hún siglir frá Landeyjahöfn, en með Þorlákshöfn sem varahöfn, eftir aðstæðum hverju sinni. 2021 var siglt í 80% tilfella til Landeyjarhafnar.[3] Herjólfur getur keyrt fram og til baka á rafmagni einu saman.[4] Herjólfur IV ristir minna og eyðir minna en Herjólfur III, þó hann flytji meira.[3][4] Það að nýji Herjólfur risti minna hefur gert honum kleift að nýta Landeyjarhöfn betur en fyrri Herjólfur.[3] Herjólfur IV flytur 73 bíla og 390 manns[2], samanborið við 60 bíla og 388 manns í Herjólfi III. Ferjan var vígð 15. júní 2019.[5]
Lengd: 68,86 m
Breidd: 15,1[2] m
einn af fyrstu bátonum sem eg er buin að bua till